12. (1778). fundur
12. (1778). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
28.03.2017
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1610239
01
Brekkugata 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GS-húsum ehf., kt. 641007-0990, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 25 íbúðum að Brekkugötu 1-3.
Málsnúmer 1703132
02
Brekkugata 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Brekkugötu 21.
Málsnúmer 1703131
03
Brekkugata 23 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Brekkugötu 23.
Málsnúmer 1702257
04
Dýjagata 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birgi Sigurðssyni, kt. 040190-2529 leyfi til að byggja einbýlishús að Dýjagötu 9.
Málsnúmer 1703168
05
Eyvindarholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Álft ehf., kt. 410715-0740 leyfi til byggja við núverandi hús að Eyvindarholti 1.
Málsnúmer 1606028
06
Smiðsbúð 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smiðsbúð 6 ehf., kt. 640412-1350 leyfi til innri breytinga á húsnæði að Smiðsbúð 6.
Málsnúmer 1703079
07
Urriðavöllur - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa, kt. 440692-2069 leyfi til að byggja véla- og áhaldageymslu á Urriðavelli.
Málsnúmer 1703190
08
Bréf frá Alþingi varðandi frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 204. mál., dags. 17.03.17.
Lagt fram.
Málsnúmer 1703204
09
Bréf Samgöngustofu varðandi umsókn um útibú ökutækjaleigu að Kauptúni 1, dags. 15.03.17.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að BL ehf., kt. 630211-0500, Sævarhöfða 2, Reykjavík verði veitt starfsleyfi til að starfrækja útibú ökutækjaleigu að Kauptúni 1 með allt að 57 bifreiðum.
Málsnúmer 1703222
10
Bréf Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins um uppgjör 2016, dags. 17.03.17.
Málsnúmer 1703237
11
Bréf SSH um endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi á rekstri endurvinnslustöðva, dags. 21.03.17.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, verkfræðing á tækni- og umhverfissviði sem fulltrúa Garðabæjar í starfshópi á vegum SSH um endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi á rekstri endurvinnslustöðva sveitarfélaganna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703183
12
Skipun starfshóps til að undirbúa byggingu fjölnota íþróttahúss.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í starfshóp til að undirbúa byggingu fjölnota íþróttahúss.
Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi.
Baldur Ó. Svavarsson, varabæjarfulltrúi.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, tilnefnd af UMF Álftanes.
Sigurður Bjarnason, tilnefndur af UMF Stjörnunni.
Kári Jónsson, íþróttafulltrúi skal starfa með starfshópnum.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir starfhópinn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703289
13
Minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga, dags. 20.03.17.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Jafnframt sagði bæjarstjóri frá fundi bæjar- og borgarstjóra með félags- og jafnréttismálaráðherra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703290
14
Erindi Reykjavíkurborgar um kynningu vegna breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Elliðaárdalur, dags. 23.03.17.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1703227
15
Bréf Stjörnunnar varðandi UEFA vottun fyrir Stjörnuvöll, dags. 15.03.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið varðandi UEFA vottun vallararins og vísar málinu ásamt undirbúningi að gerð nýs samnings um rekstur vallarins til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606484
16
Tillaga og greinargerð um Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi.
Lögð fram og kynnt tillaga og greinargerð um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð en sérstakur styrkur fékkst frá Minjastofnun til undirbúnings málsins.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
17
Afgreiðsla styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erl. tungumálum kr. 300.000
Félag eldri borgara kr. 400.000
Neytendasamtökin kr. 75.000
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 300.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000
Málsnúmer 1701354
18
Afgreiðsla skólanefndar um úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði grunnskóla 2017.
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla árið 2017.
Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 25.000.000 úr sjóðnum til 23 verkefna.
Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.