Beiðni um aukningu fjármagns vegna fjárhagsáætlunar 2017
Málsnúmer 1610286
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
18. fundur
Erindi forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar dags. 12. október 2016 um aukningu fjármagns til bóka- og tímaritakaupa, 2ja ára verkefnis, launaliðar, húsnæðis og húsbúnaðar fyrir Bókasafn Garðabæjar.
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 12. október 2016, um aukningu fjármagns til bóka- og tímaritakaupa, 2ja ára verkefnis, launaliðar, húsnæðis og húsbúnaðar fyrir Bókasafn Garðabæjar, var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd fagnar öflugu og góðu starfi Bókasafns Garðabæjar í þágu bæjarbúa og vísar erindinu til fjárhagsáætlunar 2017.
Bókasafn Álftaness var stofnað 9. nóvember 1956 og verður því 60 ára á þessu ári. Haldið verður upp á það með afmæliskaffi og upplestri 9. nóvember nk.