Tónlistarveisla í skammdeginu 2016
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
18. fundur
Farið yfir undirbúning vegna Tónlistarveislu í skammdeginu sem verður haldin á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 17. nóvember nk.
Fyrirhugaðir tónleikar undir yfirskriftinni ,,Tónlistarveisla í skammdeginu“ verða haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 17. nóvember nk. Tónlistarflytjendur þetta kvöld verða þau Jógvan Hansen, Sigríður Beinteinsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir ásamt píanóleikara.
Myndlistarfélagið Gróska verður með samsýningu í Gróskusalnum sama kvöld og fyrirtæki/verslanir á torginu verða hvött til að taka þátt með kvöldopnun.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Tónlistarveisla í skammdeginu hefur verið haldin í nóvember á hverju ári undanfarin ár á Garðatorgi. Rætt var um umgjörð og fyrri tónlistarveislur. Stefnt skal að því að halda næstu Tónlistarveislu í skammdeginu fimmtudaginn 10. nóvember nk. og kannað verður nánar með hvaða hætti fyrirtæki/rekstraraðilar á torginu geta tengst verkefninu.