Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
21. fundur
Farið yfir hvernig til tókst.
Greint var frá hvernig til tókst með þátttöku safna og Álftaneslaugar á Safnanótt og Sundlauganótt á Vetrahátíð sem fór fram í byrjun febrúar. Ágætis aðsókn var í söfnin á Safnanótt og mikil ánægja var með opið hús í Bessastaðastofu, Bessastaðakirkju og fornleifakjallarann á Bessastöðum en yfir 1200 manns lögðu leið sína þangað. Mikil ánægja var einnig á meðal gesta sem sóttu Álftaneslaug heim á Sundlauganótt. Umhverfi sundlaugarinnar var lýst upp skemmtilega og vakti það athygli víðs vegar um nesið. Einnig voru byggingar í Garðabæ lýstar upp á meðan á Vetrarhátíðinni stóð, ráðhústurninn á Garðatorgi, Bessastaðakirkja og Bessastaðastofa.
Umræður um framkvæmd fyrir næsta ár og áherslur varðandi fyrirkomulag og mögulegar samgöngur innanbæjar og víðar á meðan á safnanóttinni stendur.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
20. fundur
Farið yfir dagskrá á Vetrarhátíð, safnanótt og sundlauganótt í Garðabæ.
Greint var frá undirbúningi við Vetrarhátíð sem verður haldin 2.-5. febrúar nk. með þátttöku allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í tilefni Vetrarhátíðar verða ýmsar byggingar lýstar upp og í Garðabæ verður forsetasetrið á Bessastöðum lýst upp ásamt klukkuturninum í ráðhúsi Garðabæjar.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á safnanótt föstudaginn 3. febrúar frá kl. 18-23. Söfn í Garðabæ sem taka þátt eru Hönnunarsafn Íslands, Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi, burstabærinn Krókur en auk þess er stefnt að opnun í fornminjakjallarann á Bessastöðum. Á sundlauganótt verður opið í Álftaneslaug laugardaginn 4. febrúar frá kl. 18-23. Þar verður boðið upp á dagskrá auk þess sem aðgangur er ókeypis um kvöldið.
Dagskráin í Garðabæ verður kynnt með auglýsingu og umfjöllun í Garðapóstinum og einnig á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu bæjarins. Einnig er kynning á vegum Höfuðborgarstofu þar sem viðburðir eru kynntir sameiginlega í fjölmiðlum og hver viðburður er kynntur sérstaklega á vef Vetrarhátíðar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
19. fundur
Vetrarhátíð er fyrirhuguð 2.-5. febrúar 2017 með þátttöku sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Kynntur verður undirbúningur fyrir hátíðina.
Greint var frá undirbúningi við Vetrarhátíð sem verður haldin 2.-5. febrúar 2017. Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Krókur taka þátt í Safnanótt eins og fyrri ár og Álftaneslaug verður þátttakandi í Sundlauganótt.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
18. fundur
Greint frá undirbúningi við vetrarhátíð og ósk Höfuðborgarstofu um að fá fulltrúa frá Garðabæ til að sitja í stjórn Vetrarhátíðar.
Undirbúningur fyrir Vetrarhátíð, sem verður haldin dagana 2.-5. febrúar 2017, er hafinn. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin ár tekið þátt í tveimur stærstu viðburðunum á Vetrarhátíð, Safnanótt og Sundlauganótt.
Höfuðborgarstofa vill efla enn frekar samstarfið við nágrannasveitarfélögin í tengslum við Vetrarhátíð og hefur í ár óskað eftir að fulltrúi frá Garðabæ sitji í stjórn Vetrarhátíðar. Stjórnin hefur verið skipuð starfsmönnum höfuðborgarstofu ásamt fulltrúum sundlauga og safna í Reykjavík og síðustu ár hafa tveir fulltrúar komið frá öðrum sveitarfélögum.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi verði fulltrúi Garðabæjar í stjórn Vetrarhátíðar.