Menningaruppskeruhátíð 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
24. fundur
Farið yfir drög að dagskrá og sérstakar heiðursviðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um dagskrár menningaruppskeruhátíðar sem verður haldin í samkomuhúsinu á Garðaholti miðvikudaginn 31. maí kl. 17:30-19.
Umræður voru um heiðursviðurkenningar til framlags menningar og lista og ákveðið að heiðra þrjá einstaklinga í ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
23. fundur
Farið yfir drög að dagskrá fyrir menningarupskeruhátíð miðvikudaginn 31. maí nk. á Garðaholti.
Menningaruppskeruhátíð verður haldin miðvikudaginn 31. maí nk. frá kl. 17:30-19:00 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Farið var yfir fyrstu drög að dagskrá fyrir hátíðina.
Umræður voru um sérstakar viðurkenningar til framlags menningar og lista.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
22. fundur
Farið yfir fyrirhugaða menningaruppskeruhátíð á Garðaholti í lok maí.
Fyrirhugað er að halda menningaruppskeruhátíð á Garðaholti miðvikudaginn 31. maí nk. Farið var yfir umgjörð dagskrárinnar og hvernig hátíðin hefur farið fram undanfarin ár. Á hátíðinni hefur verið tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar, tilkynnt um úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna auk þess sem sérstök heiðursviðurkenning fyrir framlag til menningar og lista hefur verið veitt.
Undirbúningur menningaruppskeruhátíðar er í höndum upplýsinga- og menningarfulltrúa.