23. fundur
23. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
05.05.2017
Kl. 08:15 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1704055
01
Menningaruppskeruhátíð 2017
Farið yfir drög að dagskrá fyrir menningarupskeruhátíð miðvikudaginn 31. maí nk. á Garðaholti.
Menningaruppskeruhátíð verður haldin miðvikudaginn 31. maí nk. frá kl. 17:30-19:00 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Farið var yfir fyrstu drög að dagskrá fyrir hátíðina.
Umræður voru um sérstakar viðurkenningar til framlags menningar og lista.
Málsnúmer 1703007
02
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2017
Farið yfir umsóknir í Hvatningarsjóð ungra listamanna. Ákvörðun um úthlutun.
Fyrirliggjandi umsóknir voru lagðar fram og ræddar. Samþykkt að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2017:
Ragnhildur Róbertsdóttir, kt. 010794-2939, og Kolbrún Brynja Róbertsdóttir, kt. 080697-2019, styrk að upphæð 150 000 kr vegna stuttmyndaverkefnis.
Pétur Geir Magnússon, kt. 100794-2339, upphæð 130 000 kr vegna myndlistarverkefnis.
Jónas Roy Bjarnason, kt. 070991-2689, upphæð 150 000 kr vegna handritagerðar.
Jón Rúnar Ingimarsson, kt 170293-339, Eyrún Engilbertsdóttir, kt. 010793-2629 og Pétur Emil Júlíus Gunnlaugsson, kt. 080793-2949, upphæð 150 000 kr vegna tónlistarverkefnis.
Viðurkenningar fyrir úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentar á menningaruppskeruhátíðinni 31. maí nk.
Málsnúmer 1703008
03
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2017
Ábendingar um bæjarlistamann Garðabæjar árið 2017 lagðar fram og ræddar.
Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2017 í mars og apríl og frestur til að skila inn ábendingum var til og með 2. maí sl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Málið verður aftur á dagskrá á næsta fundi menningar- og safnanefndar 19. maí nk.
Málsnúmer 1705015
04
Jónsmessugleði 2017
Farið yfir undirbúning vegna Jónsmessugleði Grósku fimmtudaginn 22. júní nk.
Myndlistarfélagið Gróska er þegar byrjað að undirbúa Jónsmessugleði sem verður í ár haldin fimmtudaginn 22. júní nk. meðfram göngustígnum við ströndina í Sjálandshverfi.
Áfram er gert ráð fyrir þátttöku ungmenna í skapandi sumarstarfi hjá Garðabæ í sumar. Gróska hefur einnig verið í samstarfi við önnur listamannasamtök og félögum annarra samtaka einnig verið boðið að sýna myndlist sína á Jónsmessugleðinni. Garðabær hefur aðstoðað við undirbúning og framkvæmd Jónsmessugleðinnar skv. samstarfssamningi við Grósku.
Málsnúmer 1608549
05
Menningarviðburðir í miðbæ Garðabæjar
Greint frá umræðum um menningarviðburði í miðbænum, hátíð o.fl. hjá stjórn miðbæjarsamtaka Garðabæjar.
Miðbæjarsamtök Garðabæjar hafa nýverið tekið til starfa og stjórn þeirra samanstendur af fulltrúum rekstaraðila á torginu. Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi fundar einnig með hópnum sem tengiliður Garðabæjar. Greint var frá umræðum sem hafa verið á stjórnarfunum um mögulega menningarviðburði í miðbæ Garðabæjar og hvernig efla megi þá viðburði sem fyrir eru og jafnframt að halda fleiri viðburði. Umræður hafa verið um minni hátíð hjá fyrirtækjum á torginu í byrjun sumars en einnig skoðað hvort halda eigi hausthátíð og efla dagskrá að vetri til í kringum aðventu. Samtali við stjórn miðbæjarsamtakanna um hvernig bærinn geti stutt við menningarviðburði í miðbænum verður haldið áfram.