Jónsmessugleði 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
24. fundur
Undirbúningur fyrir Jónsmessugleði Grósku sem verður haldin fimmtudaginn 22. júní í Sjálandinu er hafinn. Um 40 listamenn ætla að sýna myndlistarverk við sjávarsíðuna þetta kvöld. Einnig verða ýmis önnur atriði í boði um kvöldið með þátttöku hóps ungmenna í skapandi sumarstörfum og fleiri aðila.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
23. fundur
Farið yfir undirbúning vegna Jónsmessugleði Grósku fimmtudaginn 22. júní nk.
Myndlistarfélagið Gróska er þegar byrjað að undirbúa Jónsmessugleði sem verður í ár haldin fimmtudaginn 22. júní nk. meðfram göngustígnum við ströndina í Sjálandshverfi.
Áfram er gert ráð fyrir þátttöku ungmenna í skapandi sumarstarfi hjá Garðabæ í sumar. Gróska hefur einnig verið í samstarfi við önnur listamannasamtök og félögum annarra samtaka einnig verið boðið að sýna myndlist sína á Jónsmessugleðinni. Garðabær hefur aðstoðað við undirbúning og framkvæmd Jónsmessugleðinnar skv. samstarfssamningi við Grósku.