Jazzhátíð Garðabæjar 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Farið yfir jazzhátíðina sem verður haldin 20.-22. apríl nk.
Farið var yfir dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin 20.-22. apríl nk. Allir kvöldtónleikar verða haldnir í Kirkjuhvoli, en auk þess verða tónleikar að degi til á laugardeginum 22. apríl í félagsmiðstöðinni Jónshúsi og í Haukshúsi á Álftanesi. Dagskráin verður kynnt í Garðapóstinum með umfjöllun og auglýsingu, auk þess sem dreifibréf verður sent inn á heimili Garðbæinga.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
21. fundur
Farið yfir drög að dagskrá.
Fyrir fundinum lágu drög að dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin dagana 20.-22. apríl nk. Áfram verður unnið að undirbúningi jazzhátíðarinnar.
Umræður voru um dagskrá jazzhátíðar 2017 og um fyrirkomulag og undirbúning jazzhátíðar og annarra menningarviðburða í bænum í framtíðinni
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
20. fundur
Jazzhátíð er fyrirhuguð 20.-22. apríl 2017.
Eins og fyrri ár er stefnt að Jazzhátíð Garðabæjar með upphaf á Sumardaginn fyrsta eða nánar tiltekið dagana 20.-22. apríl 2017. Sigurður Flosason stýrir listrænni dagskrá og undirbúningur er hafinn. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi var frá fyrstu hugmyndum um dagskrá á hátíðinni.
Áfram verður unnið að dagskrá og umræðu haldið áfram á næsta fundi.