Beint í efni

Tónlistarveisla í skammdeginu 2017

Málsnúmer 1709091

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

27. fundur

Farið yfir hvernig til tókst.

Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin í fimmtánda sinn á Garðatorgi 9. nóvember sl. Hljómsveitin Moses Hightower steig þar á svið við góðar undirtektir tónleikagesta. Sama kvöld var haustsýning Grósku í Gróskusalnum opnuð, Hönnunarsafn Íslands var með opið lengur sem og ýmsar verslanir á torginu.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

26. fundur

Undirbúningur fyrir hina árlegu Tónlistarveislu í skammdeginu er hafinn. Að þessu sinni verður tónlistarveislan fimmtudagskvöldið 9. nóvember nk. í göngugötunni á Garðatorgi. Myndlistarfélagið Gróska tekur þátt eins og fyrri ár og einnig verður hugað að samvinnu við miðbæjarsamtök Garðabæjar og fyrirtæki á torginu. Einnig var greint frá hvernig kynningu á viðburðinum hefur verið háttað undanfarin ár.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

25. fundur

Tónlistarveisla í skammdeginu hefur verið haldin í nóvember á hverju ári undanfarin ár á Garðatorgi. Stefnt er að því að halda næstu Tónlistarveislu fimmtudaginn 9. nóvember nk. og myndlistarfélagið Gróska mun sama kvöld bjóða upp á samsýningu listamanna eins og áður. Skoðað verður í samstarfi við miðbæjarsamtök Garðabæjar hvernig fyrirtæki geta tengst verkefninu t.d. með því að hafa opið hús, tilboð eða annað á sama kvöldi.