Beiðni um styrk - Töframáttur tónlistar
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
21. fundur
Bréf Brynhildar Auðbjargardóttur, f.h. Gunnars Kvarans og Töframátt tónlistar, dags. 7. febrúar, um styrk vegna tónleikaraðarinnar Töframáttur tónlistar. Erindið var tekið fyrir í bæjarráði og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Tekið var til afgreiðslu bréf Brynhildar Auðbjargardóttur, f.h. Gunnars Kvarans listræns stjórnanda, dags. 7. febrúar 2017, um styrkbeiðni vegna Töframáttar tónlistar. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar, 14. febrúar sl. og vísað til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja verkefnið Töframátt tónlistar með fjárhæð kr. 100.000 vegna samfélagslegs gildis verkefnisins og mælist til þess að verkefnið verði kynnt fyrir þeim stofnunum/félögum sem við á í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (1772). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.