Beint í efni

6. (1772). fundur

14.02.2017
Bæjarráð Garðabæjar

6. (1772). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

14.02.2017

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1701326

01

Sunnuflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sólveigu Lísu Tryggvadóttur, kt. 240380-3319 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Sunnuflöt 25.

Málsnúmer 1702100

02

Bréf leikskólastjóra um fjölgun á starfsdögum, dags. 01.02.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar leikskólanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702108

03

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um endurskoðun samnings við Fjölís, dags. 07.02.17.

Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga þar mælt er með því við sveitarfélög að þau gangi til samninga við Fjölís á grundvelli samningsdraga sem gerð hafa verið í samráði við starfsmenn Sambandsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702132

04

Bréf Fjölíss varðandi samning um afritun verndaðra verka, dags. 01.02.17.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702133

05

Bréf Töframáttar - tónlistar um styrk til tónleikaraðar, dags. 07.02.17.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701354

06

Afgreiðsla skólanefndar um breytingu á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla 2017

Bæjarráð samþykkir tillögur skólanefndar um breytingar á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla á þann hátt að úthlutun verði einu sinni á ári í stað tvisvar áður.

Málsnúmer 1702124

07

Erindi Höfuðborgarstofu um tilnefningu á fulltrúa í svæðisráð fyrir höfuðborgarsvæðið vegna DMP verkefnis, dags. 02.02.17.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttur, upplýsingarfulltrúa sem fulltrúa Garðabæjar í svæðisráð fyrir höfuðborgarsvæðið vegna DMP verkefnis.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702137

08

Bréf íbúa á Hliðsnesi um sjóvarnir, dags. 01.02.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702169

09

Bréf UMSK varðandi bókun um aukuð samstarf og samráð í íþróttamálum meðal sveitarfélaga á félagsvæðinu, dags. 29.01.17.