16. (799). fundur
16. (799). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
03.11.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Auk þess sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.[line][line]Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. október 2016 er lögð fram.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóð og lagði fram eftirfarandi bókun.[line][line]"Fulltrúar Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Fólksins í bænum gera athugasemdir við umhverfisskýrslu vegna tillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Garðabæ. Einnig mótmælum við skyndilegum áformum um fækkun á nýjum íbúðum fyrir ungt fólk í Lyngási. [line]Á bæjarstjórnarfundi 20. október sl. lögðum við fram bókun um að töflur sem voru í upprunalegri umhverfisskýrslu yrðu settar þar inn aftur. Það var þó ekki gert, skýrslan án taflna og með breyttum texta var kynnt á heimasíðu bæjarins. Eftir kvörtun minnihlutans voru þó töflurnar loksins settar inn en aðeins í sérstökum viðauka. Ekki í upprunalegri skýrslu eins og beðið var um. Töflunum í viðaukanum var líka breytt. Þar sem voru tveir mínusar er nú einn. Þar sem voru fjölmargir mínusar eru nú spurningamerki. Í upprunalegum texta er talað um "talsverð neikvæð áhrif" en núna má lesa um "óveruleg neikvæð áhrif". Þetta eru ekki upprunalegar upplýsingar. Meirihlutinn tók skýrslu sem unnin var af óháðum aðilum og breytti henni. [line]Hér var blásið til samkeppni fyrir ári síðan um sérstakt svæði með litlum og ódýrum íbúðum fyrir ungt fólk í Lyngásnum. Í upprunalegri umhverfisskýrslu er talað um 600 íbúðir. Á kynningarfundi um aðalskipulag í gær viðraði formaður skipulagsnefndar töluna 200 íbúðir í stað 600. Meirihlutinn kynnti hér frábært átak í húsnæðismálum fyrir unga fólkið en ekki verður betur séð að þeir hafi fallið allverulega frá þeim áformum."[line][line]Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóða og ræddi framlagða bókun.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.[line][line]Steinþór Einarsson, tók til máls.[line][line]Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.[line][line]Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.[line][line]Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.[line][line]Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]María Grétarsdóttir, tók til máls.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.[line][line]Halldór Jörgensson, tók til máls.[line][line]Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.[line][line]Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Dagskrá
Málsnúmer 1610034F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 25/10 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 13. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar og ræddi samþykkt bæjarstjórnar um innleiðingu á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson tók til máls að nýju.
Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1610041F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/11 ´16.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1610028F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19/10 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., samstarfsamning við Stjörnuna og fjallaði um hækkun æfingagjalda í því sambandi.
Almar Guðmundsson, ræddi sama mál.
María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1609028F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 13/10 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1610036F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 28/10 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., erindi Bókasafns Garðabæjar vegna fjárhagsáætlunar 2017 og ræddi 11. tl., sönghátíð í Garðabæ með óperuformi. Þá vakti Gunnar Valur athygli á tónlistarveislu í skammdeginu og öðrum tónlistaratburðum sem í boði eru á næstunni.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1610024F
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 18/10 ´16.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla. Þá vakti Sigríður Hulda athygli á opnu húsi í Garðaskóla 11. nóvember nk. í tilefni af 50 ára afmæli skólans.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1610047F
07
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 2/6 ´16.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., stefnu í málefnum eldri borgara.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., stefnu í málefnum eldri borgara.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1602102
08
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 31/10 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi starfsleyfi fyrir rekstur bónstöðvar að Garðatorgi 7B.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1601353
09
Fundargerð stjórnar SHS frá 28/10 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1601366
10
Fundargerð stjórnar SSH frá 10/10 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., málefni Sorpu bs. - söfnun og förgun plastúrgangs.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson ræddi sama mál.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1601267
11
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21/10 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., árskort í ferðaþjónustu fatlaðs fólks og 3. tl., stöðu farþegaþjónustu ? símsvörun í þjónustuveri.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1605502
12
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017-2020
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun. Guðrún Elín lagði fram eftirfarandi tillögu um gjaldskrár.
„Björt framtíð leggur til að gjaldskrám verði haldið óbreyttum á árinu 2017. Gjaldskrár í Garðabæ eru nú þegar með þeim hæstu á höfuðborgarsvæðinu. „
Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu um framkvæmdir við Bragalund.
„Björt framtíð gerir það að tillögu sinni að áður samþykktar tillögur um framkvæmdir við svokallaðan Bragalund við Silfurtún verði settar á dagskrá sem fyrst. Einnig leggur Björt framtíð til að ekki verði farið í nýja bæjargarða fyrr en við erum búin að klára eldri garða og opin svæði sem eru í niðurníðslu.“
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2017
Tekjur: 13.234.406
Gjöld: 12.158.783
Niðurstaða án 1.075.623
fjármagnsliða:
Fjármunatekjur og (729.554)
fjármagnsgjöld)
Rekstrarniðurstaða 346.069
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögum um gjaldskrár og framkvæmdir við Bragalund til umfjöllunar bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.