49. (1815). fundur
49. (1815). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.12.2017
Kl. 08:00 - 09:05
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1703267
01
Uppgjör á framlögum sveitarfélaga vegna breytinga á A deild Brúar - lífeyrissjóðs.
Á fund bæjarráðs mætti Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Brúar - lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og gerði grein fyrir, forsendum og útreikningum á framlagi sveitarfélaga vegna breytinga á A-deild Brúar lífeyrissjóðs sem leiðir af breytingum á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - viðauki 12.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samningur við Skátafélagið Vífil kr. 5.000.000 Ýmsir bókhaldslyklar
Samningur við UMFÁ kr. 2.800.000 06-621-44990
Sorphreinsun og endurvinnslustöðvar kr. 14.400.000 08-210-4945
Kosningar til Alþingis kr. 1.166.000 21-150
Eignasjóður - innri leiga kr. 1.134.000 Ýmsir bókhaldslyklar
Útsvar - staðgreiðsla (hækkun) kr. 24.200.000 000-10-0021
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - yfirlit yfir framkvæmdir
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu helstu framkvæmda samkvæmt framkvæmdaáætlun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1704024
04
Úrskurður ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs, dags. 14.12.2017.
Í úrskurðinum kemur fram sú niðurstaða að kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun bæjarstjórnar að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs er hafnað. Þá er felld úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar að veita framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarðs er varðar framkvæmdir við nýjan æfingavöll.
Bæjarráð vísar til skipulagsnefndar að skoða að nýju tillögu um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna uppbyggingar nýs íþróttavallar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1712130
05
Áramótabrenna 2017
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi UMF-Stjörnunnar um að annast áramótabrennu og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 1708477
06
Samkomulag Garðabæjar og Hrafnistu um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Málsnúmer 1509278
07
Bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu veghalds Álftanesvegar, dags. 08.12.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mótmæla einhliða ákvörðun Vegagerðarinnar um yfirfærslu á veghaldi Álftanesvegar og bendir á að yfirfærslan eigi að gerast á grundvelli samnings milli aðila þar sem m.a. sé tryggt fjármagn til sveitarfélagsins vegna breytinga á veghaldi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710156
08
Bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - vaxtarmörk í Mosfellsbæ, dags. 12.12.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1712136
09
Bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - vaxtarmörk á Álfsnesi, dags. 14.12.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1712087
10
Bréf Valgeirs Kristinssonar hrl. f.h. eigenda Sviðholts varðandi ósk um viðræður um sölu jarðarinnar, dags. 05.12.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.