Endurgreiðsla á framlögum til Brúar - lífeyrissjóðs.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
5. (1866). fundur
Bæjarstjóri kynnti samkomulag við Brú lífeyrissjóð um endurgreiðslu á framlagi Garðabæjar að fjárhæð kr. 10.000.000, sem greitt var sjóðnum á árinu 2018 vegna Ísafoldar
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samkomulag um uppgjör við Brú lífeyrissjóð sem felur í sér eftirfarandi skuldbindingar.
Greiðsla framlags í jafnvægisjóð kr. 224.566.134
Greiðsla framlags í lífeyrisaukasjóð kr. 1.033.759.330
Greiðsla framlags í varúðarsjóð kr. 111.214.928
Bæjarráð Garðabæjar
03
2. (1817). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir uppgjöri við Brú lífeyrissjóð vegna A-deildar sjóðsins. Fjármálastjóri sagði frá því að endurskoðendur bæjarins væru nú að fara yfir uppgjörið til að kanna réttmæti fjárhæða.
Bæjarráð vísar samkomulagi við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga um uppgjör vegna A-deildar sjóðsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð gerir fyrirvara um réttmæti fjárhæðar kr. 1.460.636.225 og varðandi greiðslu vegna Ísafoldar að fjárhæð kr. 91.095.824.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
49. (1815). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Brúar - lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og gerði grein fyrir, forsendum og útreikningum á framlagi sveitarfélaga vegna breytinga á A-deild Brúar lífeyrissjóðs sem leiðir af breytingum á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.