Beint í efni

46. (1763). fundur

29.11.2016
Bæjarráð Garðabæjar

46. (1763). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

29.11.2016

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1609321

01

Samstarfsamningur við Stjörnuna.

Á fund bæjarráðs mættu Sigurður Bjarnason, formaður og Ása Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Stjörnunnar og gerðu grein fyrir hugmyndum aðslstjórnar félagsins um breytingar á stjórnun og skipulagi félagsins. Jafnframt ræddu þau hugmyndir að endurnýjun samstarfsamnings.

Málsnúmer 1611233

02

Bréf Þjóðleikhússins um samstarf, dags. 21.11.16.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Málsnúmer 1611234

03

Bréf Samgöngustofu varðandi umsókn um staðsetningu ökutækjaleigu, dags. 18.11.16.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að skráð starfsstöð ökutækjaleigu M.I.C.E. ehf., verði að Lækjarfit 21 enda verði uppfyllt það skilyrði sem fram kemur í umsókn að ökutæki í eigu leigunnar verði aldrei staðsett við skráða starfsstöð.

Málsnúmer 1611243

04

Bréf Kvennaráðgjafarinnar um styrk fyrir árið 2017, dags. 18.11.16.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagáætlun árið 2017.

Málsnúmer 1611247

05

Bréf Verkiðnar um styrk fyrir íslandsmót iðn- og verkgreina, dags. 23.11.16.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra og til kynningar í skólanefnd.

Málsnúmer 1605502

06

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017-2020.

Bæjarstjóri kynnti tillögur um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun og tillögur um breytingar gjaldskrám.

Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020 ásamt tillögum að breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 1. desember nk.