Samstarf um heilsueflingu við FEBG
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
1. fundur
ÍTG tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfi FEBG um mikilvægi þeirra forvarna sem felast í þjálfunartengdri heilsueflingu þar sem skipulögð hreyfing kemur í stað kyrrsetu og telur áhugavert að kannaðir séu nánar möguleikar á umræddu samstarfi. Samþykkt að leita til Janusar Guðlaugssonar til að fá kynningu á verkefninu og upplýsingar um leiðir til að efla heilsurækt og vellíðan meðal eldri íbúa Garðabæjar.
Íþróttafulltrúa falið að leita til Janusar til að fá kynningu fyrir ÍTG og fjölskylduráð.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
7. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1806030. Hinn 10.7. 2018 vísaði bæjarráð Garðabæjar erindi FEBG varðandi ósk um samstarf félagsins og Garðabæjar við Janus heilsueflingu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði. Fjölskylduráð fjallar um erindið. Ráðið tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfi FEBG um mikilvægi þeirra forvarna sem felast í þjálfunartengdri heilsueflingu þar sem skipulögð hreyfing kemur í stað kyrrsetu og telur áhugavert að kannaðir séu nánar möguleikar á umræddu samstarfi. Fjölskylduráð mun kalla eftir frekari upplýsingum um verkefnið og vinna málið áfram í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð.
Bæjarráð Garðabæjar
04
24. (1839). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.