Beint í efni

7. fundur

26.07.2018
Fjölskylduráð Garðabæjar

7. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

26.07.2018

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snædís Björnsdóttir

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1802118

01

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir nr. 1802118 - barnaverndarmál. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1802114

02

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir nr. 1802114 - barnaverndarmál. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1803373

03

Umsókn um leyfi sem stuðningsfjölskylda

Tekið er fyrir mál nr. 1803373 umsókn um leyfi sem stuðningsfjölskylda.

Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1804321

04

Beiðni um endurnýjun leyfis fyrir stuðningsfjölskyldu

Tekið er fyrir mál nr. 1804321 beiðni um endurnýjun leyfis fyrir stuðningsfjölskyldu.

Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1806065

05

Aðgerðir til að endurvekja traust og trúnað í málaflokki barnaverndar á Íslandi

Bréf frá Velferðarráðuneyti dags. 1. júní 2018 lagt fram til kynningar. Í erindinu upplýsir ráðuneytið um þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að grípa til með því markmiði að endurvekja traust og trúnað innan málaflokks barnaverndar á Íslandi. Bréfið er lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1806030

06

Samstarf um heilsueflingu við FEBG

Tekið er fyrir mál nr. 1806030. Hinn 10.7. 2018 vísaði bæjarráð Garðabæjar erindi FEBG varðandi ósk um samstarf félagsins og Garðabæjar við Janus heilsueflingu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði. Fjölskylduráð fjallar um erindið. Ráðið tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfi FEBG um mikilvægi þeirra forvarna sem felast í þjálfunartengdri heilsueflingu þar sem skipulögð hreyfing kemur í stað kyrrsetu og telur áhugavert að kannaðir séu nánar möguleikar á umræddu samstarfi. Fjölskylduráð mun kalla eftir frekari upplýsingum um verkefnið og vinna málið áfram í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð.

Málsnúmer 1807047

07

Forgangsmarkmið samþykkt vegna heimsmarkmiðanna

Tekið er fyrir mál nr. 1807047. Bæjarráð Garðabæjar vísaði dags.10.7. 2018 til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og fleiri nefndum tilkynningu Sambandsins um tillögur verkefnastjórnar að forgangsröðun á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega. Fram kemur í tilkynningunni að endanlegar ákvarðanir um aðkomu sveitarstjórnarstigsins að verkefninu verða teknar á næsta landsþingi sveitarfélaga. Fjölskylduráð fjallar um málið sem verður tekið fyrir að nýju síðar.