Sumarleyfi bæjarstjórnar 2018.
Málsnúmer 1806149
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (831). fundur
Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 16. ágúst 2018. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 14. ágúst 2018.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.