Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs
Málsnúmer 1806155
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (831). fundur
Tillaga kom fram um Gunnar Val Gíslason, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
Gunnar Valur þakkaði bæjarfulltrúum traustið og hvatti þá til góðra verka og samstöðu um framgang mikilvægra mála fyrir samfélagið í Garðabæ.
Tillaga kom fram um Sigurð Guðmundsson, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
Tillögur komu fram um Jónu Sæmundsdóttur og Söru Dögg Svanhildardóttur, sem 2. varaforseta. Átta bæjarfulltrúar greiddu Jónu atkvæði (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS) en þrír greiddu Söru Dögg atkvæði. (SDS,HÞ,VÖW).