Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 8/5 ´18.

Málsnúmer 1805007F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (830). fundur

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 22 tl., fyrirspurn Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við fjölnotasal.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og spurði um hönnun og framkvæmdir við sundlaugina við Ásgarð.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 22. tl., fyrirspurn Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við fjölnotasal og hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og svaraði fyrirspurnum.

Sturla Þorsteinson, kvaddi sér hljóðs að nýju og þakkaði fyrir svarið.

Steinþór Einarsson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina, 13. tl., val á bæjarlistamanni og 14. tl., úthlutun styrkja úr hvatningarsjóði ungra listamanna. Áslaug Hulda óskaði bæjarlistamanni Garðabæjar og styrkþegum til hamingju með viðurkenningarnar og þakkaði menningar- og safnanefnd fyrir glæslega uppskeruhátíð menningarmála.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og gat þess að sérstaklega hafi verið horft til aðgengismála við framkvæmdina.

Almar Guðmundsson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og sagði frá störfum starfshóp sem er að skoða möguleika á starfsemi heilsuræktarstöðvar í Ásgarði.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 23. tl., greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.

Halldór Jörgensson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 19. tl., bréf GÓ um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað og 20. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Strandvegi 13.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina. Þá ræddi Jóna 13. tl., val á bæjarlistamanni og 14. tl., úthlutun styrkja úr hvatningarsjóði ungra listamanna og tók undir hamingjuóskir til bæjarlistamanns og ungra styrkþega hvatningarsjóðs.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 13. tl., val á bæjarlistamanni og menningaruppskeruhátíð.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 19. tl., bréf GÓ um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað og 20. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Strandvegi 13.

Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.