Beint í efni

29. (1844). fundur

21.08.2018
Bæjarráð Garðabæjar

29. (1844). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

21.08.2018

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1707051

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðauki 3.

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2018 er varðar breytingar á framkvæmdayfirliti 2018.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Urriðaholtsskóli kr. 500.000.000

Fjölnota salur kr. 150.000.000

Ásgarður ? nýtt parketgólf kr. 60.000.000

Fjölnota íþróttahús (lækkun) kr. -270.000.000

Útilífsmiðstöð skáta (lækkun) kr. -20.000.000

Endurbætur sundlaugar í Ásgarði kr. 170.000.000

Álftanesskóli ? viðbygging kr. 160.000.000

Samtals ? hækkun kr. 750.000.000

Tekin ný langtímalán kr. 750.000.000

Málsnúmer 1807175

02

Haustakur 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafi Páli Snorrasyni, kt. 220482-5969 leyfi til að byggja einbýlishús að Haustakri 1.

Málsnúmer 1806237

03

Víkurgata 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hákoni Bergmann Óttarssyni, kt. 270869-4839 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 21.

Málsnúmer 1803423

04

Bréf íþróttafulltrúa um aðsóknartölur og opnunartíma sundlauga Garðabæjar, dags. 09.08.18.

Lögð fram samantekt íþróttafulltrúa um aðsóknartölur í sundlaug Garðabæjar í Ásgarði en tilraun var gerð í sumar að hafa opnunartíma til kl. 22:00 alla daga vikunnar. Þá var einnig ákveðið að hafa ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára.

Bæjarráð samþykkir að opnunartími verði áfram til kl. 22:00 á virkum dögum en til kl. 18.00 um helgar. Bæjarráð samþykkir jafnframt að áfram verði ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára í anda yfirlýsingar um að Garðabær sé heilsueflandi samfélag.

Bæjarráð vísar til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 að kanna nánar kostnaðarauka við lengdan opnunartíma sundlaugar um helgar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808167

05

Bréf Hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2018, dags. 15.08.18.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 1.973.408 til greiðslu fasteignagjalda árið 2018.

Málsnúmer 1808123

06

Tillaga Garðabæjarlistans um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag.

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í skólanefnd, leikskólanefnd og íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808124

07

Tillaga Garðabæjarlistans um félagslegt húsnæði - stefnumótunarvinna.

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808125

08

Tillaga Garðabæjarlistans um gagnsærri stjórnsýslu.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að endurskoða reglur bæjarins um styrki til starfsmanna vegna námsleyfa o.fl. þannig að ákvarðanir um afgreiðslu séu teknar innan viðkomandi sviða samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun hverju sinni og í samráði við mannauðsstjóra.

Bæjarráð vísar tillögunni til stefnumótunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 hvað varðar framkvæmd og fjármögnun á umsóknum starfsmanna um sí- og endurmenntun.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804130

09

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar, dags. 08.08.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl