Bréf íþróttafulltrúa um aðsóknartölur og opnunartíma sundlauga Garðabæjar, dags. 09.08.18.
Málsnúmer 1803423
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (1844). fundur
Lögð fram samantekt íþróttafulltrúa um aðsóknartölur í sundlaug Garðabæjar í Ásgarði en tilraun var gerð í sumar að hafa opnunartíma til kl. 22:00 alla daga vikunnar. Þá var einnig ákveðið að hafa ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára.
Bæjarráð samþykkir að opnunartími verði áfram til kl. 22:00 á virkum dögum en til kl. 18.00 um helgar. Bæjarráð samþykkir jafnframt að áfram verði ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára í anda yfirlýsingar um að Garðabær sé heilsueflandi samfélag.
Bæjarráð vísar til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 að kanna nánar kostnaðarauka við lengdan opnunartíma sundlaugar um helgar.