Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um gagnsærri stjórnsýslu.

Málsnúmer 1808125

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

29. (1844). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að endurskoða reglur bæjarins um styrki til starfsmanna vegna námsleyfa o.fl. þannig að ákvarðanir um afgreiðslu séu teknar innan viðkomandi sviða samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun hverju sinni og í samráði við mannauðsstjóra.

Bæjarráð vísar tillögunni til stefnumótunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 hvað varðar framkvæmd og fjármögnun á umsóknum starfsmanna um sí- og endurmenntun.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (832). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn feli yfirmönnum bæjarfélagsins alfarið um að taka ákvarðanir um launað námsleyfi almennra starfsmanna Garðabæjar í hvaða formi sem sótt er um slíkt í samráði við mannauðstjóra og fjármálasvið bæjarins.
Þannig verði horfið frá því að kjörnir fulltrúar komi með beinum hætti að aðstöðu einstakra starfsmanna. Garðabæjarlistinn leggur því til samhliða þessari breytingu að í fjárlögum sé gert ráð fyrir fjármagni í endurmenntun almennra starfsmanna.
Garðabæjarlistinn leggur fram reikniaðgerð með tillögunni sem leiðir til þess að það liggi fyrir hvaða fjárveiting er í boði ár hvert til að mæta slíkum umsóknum og óþarft að ákvörðun um starfskjör einstaka starfsmanna fari fyrir kjörna fulltrúa.“

Greinargerð
Tillaga Garðabæjarlistans er hluti af áherslu á gagnsærri og faglegri stjórnsýslu þar sem m.a. kjörnir fulltrúar eru ekki að fara með ákvarðanir sem auðvelt er að setja inn í ferla stjórnsýslunnar með skýrum reglum um framkvæmd. Þess vegna leggur Garðabæjarlistinn til að bætt verði við núverandi reglur í mannauðsstefnu, um hvernig sí og endurmenntun er fjármögnuð og hvernig úthlutun fer fram. Það er mikilvægt að það sé gert með miðlægum hætti til að tryggja jafnræði milli starfsmanna óháð því hvar þeir starfa. Og um leið að gera beina aðkomu kjörinna fulltrúa óþarfa með sterkri og faglegri stjórnsýslu.
Á fjárhagsáætlun hvers árs skal bæjarstjórn marka fjárheimildir til sí- og endurmenntunar starfsmanna. Stefnt skal á að sú fjárhæð nemi um 0,7% af áætluðum launum og launatengdum gjöldum sveitarfélagsins viðkomandi ár, að frádregnum lífeyrisskuldbindingum. Ákvörðun um hlutfallið skal bæjarstjórn taka árlega við gerð fjárhagsáætlunar og bóka í fundargerð.
Fjármagnið skal nýta til greiðslu beins kostnaðar vegna námsins, svo sem námskeiðs- og ráðstefnugjalda, kaupa á fræðsluefni og leigu á aðstöðu til námskeiðahalds. Utan við fjármögnun sjóðsins er kostnaður vegna ferða og gistingar starfsmanna.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.