Tillaga um félagslegt húsnæði - stefnumótunarvinna
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
10. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1808124 tillaga um félagslegt leiguhúsnæði - stefnumótunarvinna.
Fjölskylduráð fjallar um málið.
Fram kemur að í gangi er vinna við húsnæðisáætlun Garðabæjar. Hlutverk húsnæðisáætlana sveitarfélaga er að draga upp mynd af stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu, greina framboð og eftirspurn eftir mismunandi húsnæðisformum og gera áætlun um hvernig húsnæðisþörfinni verður mætt til skemmri og lengri tíma. Drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar munu koma til umfjöllunar nefnda m.a. í fjölskylduráði Garðabæjar.
Félagsmálastjóri upplýsir að í gangi eru viðræður um samstarf milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins varðandi raunhæfar lausnir þegar leysa þarf úr bráðum húsnæðisvanda. Stjórn SSH hefur vísað erindi þess efnis til skoðunar og umsagnar hjá samráðshópi félagsmálastjóra sveitarfélaganna.
Málinu er vísað til frekari umræðu í fjölskylduráði í tengslum við gerð húsnæðisáætlunar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (1844). fundur
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
10. (832). fundur
Valborg Á Warén kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn setji af stað stefnumótunarvinnu varðandi félagslegt húsnæði og úr verði stefna Garðabæjar í vegna húsnæðisvanda fyrir fólk í almennum og sértækum úrræðum svipað og Reykjavíkurborg hefur þegar gert. Að Garðabær verði í fararbroddi og öðrum sveitarfélögum fyrirmynd er eitthvað sem ætti að stefna að. Lagt er til að fari fram greining á núverandi stöðu, þörfinni til framtíðar og hvernig forvarnir þurfa að vera til staðar og einnig þarf að vera til staðar neyðarúrræði þegar uppkoma aðstæður sem krefjast snöggrar afgreiðslu. Enn fremur að skoðuð verði markmið og framtíðarsýn og hvert sé lögbundin hlutverk Garðabæjar og að hvaða leyti bæjarfélagið vill ganga lengra sem og verði mótuð samskipti við önnur sveitarfélög við úrlausn mála utangarðsfólks og að skýrt sé tekið á hlutverki Garðabæjar í þessum málaflokki.
Garðabæjarlistinn leggur enn fremur til að samhliða stefnumótun fari fram greining á því hvers vegna þeir 44 einstaklingar sem hófu umsóknarferli fyrir félagslegu húsnæði á síðasta kjörtímabili fluttu úr sveitarfélaginu áður en umsóknarferli lauk. Að fari fram greining á því hversu langur biðtíminn er og hvernig hægt sé að stytta hann því skv. umboðsmanni Alþingis er biðtími eftir félagslegu húsnæði of langur. Þó að efnið eigi að meginstefnu við um Reykjavíkurborg þá eigi það líka við um önnur sveitarfélög.“
Greinargerð.
Það er ótækt að ekki sé til stefna um hvernig eigi að bregðast við þeirri þörf sem er til staðar fyrir félagsleg húsnæði né framtíðarsýn. Biðlistinn eftir slíku úrræði er langt frá því að vera langur eða óyfirstíganlegur. Umfang slíks úrræðis eins og það er í dag í sveitarfélaginu getur seint talist Garðabæ til tekna. Garðabæjarlistinn telur mikilvægt að gera þar bragabót á sem allra fyrst. Nýútkomin umrædd skýrsla umboðsmanns Alþingis um stöðu heimilslausra í Garðabæ kallar ekki síður á skjót viðbrögð þess efnis að sett verði af stað vinna við að gera markvisst betur í húsnæðismálum þeirra sem þurfa á félagslegu úrræði að halda og um það megi finna stefnu og framkvæmdaráætlun til framtíðar. Slíkt getur komið fyrir okkur öll og Garðabæjarlistinn telur það vera forgangsmál fyrir Garðabæ sem og önnur sveitarfélög.
Mikilvægt er að viðunandi neyðarúrræði sé til staðar í bæjarfélaginu á meðan beðið er eftir varanlegu úrræði. Þessi aðstoð verður að fullnægja lágmarkskröfum stjórnarskrár og má ekki vera hugsuð til langtíma. Þetta á m.a. við þegar aðstoð felst í því að sá sem þess þarf eigi kost á húsnæðisúrræði til úrlausnar á húsnæðisvanda sínum. Hafi sveitarfélag ákveðið að nýta svigrúm sitt til að útfæra aðstoðina með öðrum hætti s.s. með fjárhagsaðstoð, lánveitingum eða framboði af félagslegum eignaríbúðum, verða úrræðin sem gripið er til einnig að vera til þess fallinn að tryggja efnislegan lágmarksrétt. Garðabæjarlistinn vill úttekt á því hvort allir íbúar sem þurfi á félagslegum úrræðum að halda hjá Garðabæ hafi tryggðan lágmarksrétt. Og stefna sett til framtíðar hvernig tryggja skal þann rétt.
Í áliti umboðsmanns segir ennfremur að sveitastjórnir skulu, eftir því sem kostur er og þörf sé á, tryggja framboð á leiguhúsnæði, félagslegum kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim einstaklingum og fjölskyldum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrgðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Garðabæjarlistinn leggur til að gerð verði úttekt og greint fyrir stefnumótun fyrir málaflokkinn hvort Garðabær uppfylli þessi skilyrði.
Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.