10. fundur
10. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.09.2018
Kl. 16:30 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Kristín Einarsdóttir - varamaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1808290 umsókn um fjárhagsaðstoð.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldri
Tekið er fyrir mál nr. 1807018 beiðni Barnaverndarstofu um umsögn og afstöðu fjölskylduráðs í tengslum við umsókn um leyfi til að gerast fósturforeldri. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2018-2022
Samkvæmt 9. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 skulu sveitarstjórnir marka sér stefnu og vinna framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir hvert kjörtímabil. Fyrir fundinum liggja drög að endurskoðaðri framkvæmdaáætlun Garðabæjar fyrir kjörtímabilið 2018-2022. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir athugasemdir. Málið verður tekið aftur til umfjöllunar á næsta fundi ráðsins.
04
Tillaga um félagslegt húsnæði - stefnumótunarvinna
Tekið er fyrir mál nr. 1808124 tillaga um félagslegt leiguhúsnæði - stefnumótunarvinna.
Fjölskylduráð fjallar um málið.
Fram kemur að í gangi er vinna við húsnæðisáætlun Garðabæjar. Hlutverk húsnæðisáætlana sveitarfélaga er að draga upp mynd af stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu, greina framboð og eftirspurn eftir mismunandi húsnæðisformum og gera áætlun um hvernig húsnæðisþörfinni verður mætt til skemmri og lengri tíma. Drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar munu koma til umfjöllunar nefnda m.a. í fjölskylduráði Garðabæjar.
Félagsmálastjóri upplýsir að í gangi eru viðræður um samstarf milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins varðandi raunhæfar lausnir þegar leysa þarf úr bráðum húsnæðisvanda. Stjórn SSH hefur vísað erindi þess efnis til skoðunar og umsagnar hjá samráðshópi félagsmálastjóra sveitarfélaganna.
Málinu er vísað til frekari umræðu í fjölskylduráði í tengslum við gerð húsnæðisáætlunar.