36. (1851). fundur
36. (1851). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
09.10.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Víkurgata 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jónu Ósk Pétursdóttur, kt. 050165-3459 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 9.
02
Víkurgata 23 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Sigurði Halldórssyni, kt. 050269-3619 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 23.
03
Bréf íbúa við Unnargrund um samstarf við að reisa girðingu við lóðarmörk, dags. 01.10.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
04
Tillögur Strætó bs. um úrbætur til að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, dags. 27.09.18.
Lögð fram greinargerð verkefnahóps sem skipaður var starfsmönnum verkfræðistofunnar Mannvits og Strætó bs. um úrbætur til að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
05
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál., dags. 28.09.18.
Ingvar Arnarsson, lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn undrast afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga gagnvart frumvarpi til breytinga á barnalögum, nr. 76/2003, sem fjallar um að mögulegt verði að börn eigi tvö lögheimili.
Garðabæjarlistinn leggur til að Garðabær skili inn áliti sem styður frumvarpið, enda er hér um mikilvægt réttlætismál, þar sem sveitarfélög þurfa að axla ábyrgð með því að breyta greiðslukerfum sínum, sem er smámál miðað við þau réttindi sem nú er verið að brjóta á börnum og foreldrum þeirra.“
Bæjarráð vísar málinu ásamt framlagðri tillögu til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla, leikskólanefnd, fjölskylduráð og íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
06
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á kvennakvöldi Stjörnunnar í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
07
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á villibráðakvöldi körfuknattleiksdeildar í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á herrakvöldi Stjörnunnar í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
09
Bréf Bjargs íbúðafélags hses., varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða, dags. 02.10.18.
10
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi búsetu í atvinnuhúsnæði, dags. 27.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfisviðs.
Fylgiskjöl
11
Styrkumsókn vegna nýbyggingar í Vatnaskógi
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
12
Tillaga Garðabæjarlistans um systkinaafslátt í íþrótta- og tómstundastarfi.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
13
Bréf Kiwanisklúbbsins Hraunborgar um styrk til útgáfu á söngbók, dags. 05.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
14
Bréf MS-félags Íslands um húsnæðisstyrk, dags. 01.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
15
Bréf Skipulagstofnunar með beiðni um umsögn vegna uppbyggingar á skíðasvæði í Bláföllum, dags. 02.10.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
16
Starfsáætlanir sviða 2018
17
Heimsóknir í stofnanir.
Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir. Urriðaholtsskóla, Flataskóla, Garðaskóla og Íþróttamiðstöðina Ásgarð.