11. fundur
11. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.10.2018
Kl. 16:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar
Tekið er fyrir mál nr. 1806473 beiðni um umsögn fjölskylduráðs vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar
Tekið er fyrir mál nr. 1808199 beiðni um umsögn fjölskylduráðs vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1809256 umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2018-2022
Tekið er fyrir mál nr. 1809275 framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2018-2022. Fjölskylduráð fjallar um áætlunina og framkomnar athugasemdir. Samþykkt er að senda fyrirliggjandi drög að framkvæmdaáætlun til afgreiðslu bæjarráðs.
05
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.
Tekið er fyrir mál nr. 1810017 frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum. Bæjarráð Garðabæjar vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Ýmis sjónarmið koma fram. Fjölskylduráð leggur höfuðáherslu á að alltaf skuli hafa það sem barni er fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir er varða börn sbr. m.a. 3. gr. í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægt er að fyrirkomulag búsetu barna sé til þess fallið að tryggja stöðugleika, samfellu, öryggi og festu í lífi þeirra. Fjölskylduráð mun taka málið aftur fyrir síðar.
06
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga
Tekið er fyrir mál nr. 1809281 tilkynning frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.Lagt fram.