Beint í efni

Íþróttahátíð Garðabæjar vegna 2019

Málsnúmer 1911259

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

16. fundur

Kjör íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar
Kjör á liði Ársins
Viðurkenning fyrir störf að félagsmálum

Íþróttakona Garðabæjar 2019 er Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona í Stjörnunni og íþróttakarl Garðabæjar 2019 er Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður fatlaðra úr Víkingi. Vefkosning fór fram og var hún samhljóða áliti fulltrúa í ÍTG.
Liði Ársins í hópíþróttum var valið Karlalið GKG.
Þjálfarar ársins eru Birgir Jónasson knattspyrnuþjálfari hjá UMFÁ og Daniela Rodriquez körfuboltaþjálfari hjá Stjörnunni.
Viðurkenning fyrir störf að félagsmálum fá Þorsteinn Þorbergsson Stjörnunni, Steinunn Guðbjörnsdóttir Hestamannafélaginu Sóta og Guðrún Kolbrún Thomas Félagi eldriborgara í Garðabæ.
Alls verða veittar 450 viðurkenningar.
346 hljóta viðurkenningu fyrir "framúrskarandi árangur innanlands".
5 fyirr að keppa með A-landsliði í fyrsta skipti
28 fyrir að keppa með U-landsliðum
50 fyrir að ná verðlaunum á erlendum vettvangi.
Veitingar eru fram reiddar af fimleikadeild Stjörnunnar. Hljómsveitin Polyfonia frá TG leikur í byrjun hátíðar og fimleikaflokkur sýnir listir sínar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

15. fundur

Umsagnir um fjóra karla og fjórar konur voru lagðar fram til kjörs um íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar 2019. Almenningi er boðið að taka þátt í að kjósa á vef Garðabæjar yfir hátíðirnar. Kynning fer í Garðapóstinn og á vefsíðu bæjarins. Þeir karlar sem í kjöri verða eru: Aron Snær Júlíusson golfari GKG, Árni Rúnar Baldursson lyftingamaður Stjörnunni, Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður íþróttum fatlaðra og Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður Stjörnunni. Þær konur sem verða í kjöri til íþróttakonu Garðabæjar eru Birna Aradóttir lyftingakona Stjörnunni, Hulda Clara Gestsdóttir golfari GKG, Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona Stjörnunni og Þórhildur Gunnarsdóttir handknattleikskona Stjörnunni.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

14. fundur

Kallað er eftir ábendingum um íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar 2019. Erindi verða send út á íþróttafélög og auglýst í Garðapóstinum og á heimasíðu Garðabæjar. Kjöri verður líst á Íþróttahátíð Garðabæjar 5. janúar 2020 í fimleikasalnum í Ásgarði.
Viðurkenningar verða einnig veittar fyirr framúrskarandi árangur á landsvísu og landsliðsþátttöku.

Kallað er eftir ábendingum um íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar 2019. Erindi verða send út á íþróttafélög og auglýst í Garðapóstinum og á heimasíðu Garðabæjar. Kjöri verður líst á Íþróttahátíð Garðabæjar 5. janúar 2020 í fimleikasalnum í Ásgarði.