Beint í efni

Hreinsunarátak 2024

Málsnúmer 2402172

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

18 (22-26). fundur

Árlegt hreinsunarátak var haldið dagana 22. apríl - 6. maí. Þrjátíu og fimm hópar fengu úthlutuð svæði til að hreinsa í nærumhverfi sínu. Umhverfisnefnd vill koma fram þökkum til allra þeirra sem tóku þátt.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

16 (22-26). fundur

Breytt útfærsla á vorhreinsun lóða kynnt. Frétt varðandi breytt fyrirkomulag mun birtast á næstu dögum á vef bæjarins og Garðapóstinum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

15 (22-26). fundur

Hreinsunarátak og vorhreinsun lóða 2024 rædd. Hreinsunarátak verður með sama sniði og síðustu ár og mun fara fram dagana 22. apríl - 6. maí. Unnið er að breyttri útfærslu Vorhreinsun lóða þar sem íbúum mun gefast kostur á að losa garðaúrgang í gáma sem verða aðgengilegir í nærumhverfi inni í hverfum. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að breytt útfærsla vorhreinsun lóða verði kynnt vel fyrir íbúum bæjarins.