Beint í efni

Grímsgata 2-4, ónýtt rými - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2401516

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (936). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá deiliskipulagi varðandi nýtingu á niðurgröfnu kjallararými fyrir geymslur við byggingu fjölbýlishússins við Grímsgötu 2-4. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2401516)

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (2107). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá deiliskipulagi varðandi nýtingu á niðurgröfnu kjallararými fyrir geymslur við byggingu fjölbýlishússins við Grímsgötu 2-4. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram fyrirspurn um nýtingu á óuppfylltu virkisrými við suðurenda 1.hæðar sem er niðurgrafið og gluggalaust. Spurt er hvort hægt sé að nýta rýmið sem geymslur fyrir íbúðir fjölbýlishússins.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað nýtingu umrædds rýmis varðar.