Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýri vegna lóðarinnar að Lambamýri 3.

Málsnúmer 2402118

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (2128). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að samþykkja tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar, í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan, sem varðar staðsetningu sorpskýlis verslunar og bílastæða meðfram Breiðumýri, var grenndarkynnt. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Breiðumýrar að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir staðsetningu sorpkýlis verslunar og bílastæða meðfram Breiðumýri. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

6. (939). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi vegna staðsetningar sorpskýlis í tengslum við matvöruverslun á lóðinni að Lambamýri 3.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum í Lambamýri og Svanamýri sem og íbúum í Birkiholti 1, 3 og 5.“ (Mál nr. 2402118)

Bæjarráð Garðabæjar

04

14. (2115). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi vegna staðsetningar sorpskýlis í tengslum við matvöruverslun á lóðinni að Lambamýri 3
Grenndarkynna skal lóðarhöfum í Lambamýri og Svanamýri sem og íbúum í Birkiholti 1,3 og 5.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags fjölbýlishúsabyggðar í Breiðumýri sem gerir ráð fyrir staðsetningu sorpskýlis í tengslum við rekstur matvöruverslunar að Lambamýri 3.
Skipulagsnefnd fellst á útfærslu tillögunnar að öðru leyti en því að lagt er til að þak sorpskýlis verði með grasi enda blasir það við nálægum íbúðum.
Gert verði ráð fyrir bílastæðum í deiliskipulagi með aðkomu frá Breiðumýri þar sem Álftaneskaffi er nú. Bílastæði norðan við spennistöð verði til bráðabirgða þar til Álftaneskaffi verður fjarlægt. Setja skal um ákvæði um gróður milli sorpskýlis og spennistöðvar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna með ofangreindum breytingum sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum í Lambamýri og Svanamýri sem og íbúm í Birkiholti 1,3 og 5.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

3. fundur

Lögð fram tillaga að útfærslu sorpskýlis verslunar að Lambamýri 3 og tengsl hennar við spennistöð.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að framlögð útfærsla á sorpskýli og spennistöð sé ekki fullnægjandi og vísar til hugmynda um útfærslu sem koma fram í umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útfærslu á yfirborði "göngugötu" eins og tillaga Landhönnunar gerir ráð fyrir og vísar í því sambandi til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Útfærslu á sorpskýli vísað til frekari úrvinnslu hjá framkvæmdaaðila, umhverfissviði og deiliskipulagshöfundi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir sorpskýli vestan við fjölbýlishúsið Lambamýri 3 og bílastæði fyrir 8 bíla með aðkomu frá Breiðumýri. Sorpskýlinu er ætlað að þjóna verslunarrými á jarðhæð að Lambamýri 3 og bílastæðin auðveldi aðkomu að versluninni frá Breiðumýri. Aðkoma að sorpskýlinu verði frá bílastæðinu og dregur það úr umferð stærri bíla sem tengjast versluninni um Lambamýri og framhjá leikskóla.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og skipulagshöfundi.