Sjáland Pikkolo - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
2. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynnti hugmynd að útfærslu svæðis umhverfis afhendingarstað við bílastæði Sjálandsskóla með aðkomu frá Vífilsstaðavegi.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir umferðargreiningu á valkostum að staðsetningu afhendingarstöðvar og grenndargámastöðvar nærri bílastæði Sjálandsskóla.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að staðsetningu miðstöðvar (staldurstæði) fyrir grenndargáma og aðstöðu fyrir afhendingarþjónustu ofan við bílastæði Sjálandsskóla. Tvær útfærslur að aðkomu hafa verið skoðaðar, frá bílastæði við Sjálandsskóla og frá Vífilsstaðavegi.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að fyrir liggi mat umferðarsérfræðinga og tillaga að landlagsmótun umhverfis stæðið.