Útholt 35-41 fjölgun lóða - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og umsögn deiliskipulagshöfundar. Lýtur fyrirspurn að því hvort heimilað verði að fjölga íbúðareiningum í raðhúslengjunni um eina, úr fjórum í fimm.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að fjölga íbúðum í raðhúslengjum sem hafa nú þegar 4 íbúðareiningar eða fleiri ef að byggingarmagn eykst ekki. Það kallar hinsvegar á breytingu á viðmiðunarfjölda íbúðareininga í Hnoðraholti norður sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna að tillögu að verkefnislýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúslengjum um eina sbr.ofangreint.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa raðhúslengjunnar hvort heimilað yrði að fjölga íbúðareiningum úr 4 í 5 og þar með minnka flatarmál hverrar einingar. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
15. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að raðhúslengjunni Útholt 35-41.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði og deiliskipulagshöfundi.