15. (2116). fundur
15. (2116). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
23.04.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
- Lúðvík Hjalti Jónsson - fjármálastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2404194
01
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, varðandi frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, dags. 9. apríl 2024.
Í bréfinu kemur fram að Gæða og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sé að kanna framkvæmd sveitarfélaga á ýmsum lagalegum skyldum í þjónustu við fatlað fólk sem býr í íbúðarkjörnum og herbegjasambýlum. Af þeirri ástæðu hafi GEV stofnað til frumkvæðisathugunar á þjónustu við fullorðið fatlað fólk í íbúðakjörnum og á herbergjasambýlum á grundvelli 14. gr. laga nr. 38/2018.
Málsnúmer 2403495
02
Svar Vegagerðarinnar til Golfklúbbsins Odds varðandi ástand Elliðavatnsvegar (Flóttamannavegur), dags. 17. apríl 2024.
Í svari Vegagerðarinnar kemur fram að Vegagerðin hafi falið verkfræðistofunni Eflu að skoða möguleikann á að koma fyrir undirgöngum sem eru einföld í framkvæmd, við Elliðavatnsveg, fyrir fótgangandi vegfarendur.
Málsnúmer 2404185
03
Aðalfundarboð Betri samgangna ohf. vegna starfsársins 2023, dags. 18. apríl 2024.
Í bréfinu kemur fram að stjórn Betri samganga ohf. hafi ákveðið að fresta aðalfundi félagsins fram til 30. apríl 2024.
Málsnúmer 2404359
04
Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna hf. 2024 vegna starfsársins 2023.
Lagt fram aðalfundarboð Landskerfis bókasafna hf., árið 2024, sem haldinn verður þriðjudaginn 7. maí 2024.
Málsnúmer 2404370
05
Sjálfbærniskýrsla Strætó 2023, útg. 18. apríl 2024.
Lögð fram.
Málsnúmer 2404387
06
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál., dags. 19. apríl 2024.
Lagt fram
Málsnúmer 2404388
07
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál., dags. 19. apríl 2024.
Lagt fram.
Málsnúmer 2308538
08
Ársreikningur Garðabæjar 2023.
Umræða bæjarráðs, eftir fyrri umræðu um ársreikning Garðabæjar sem fram fór í bæjarstjórn Garðabæjar 18. apríl 2024.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar og Þorbjörg Kolbeinsdóttir deildarstjóri bókhaldsdeildar Garðabæjar mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir lykiltölur úr rekstri bæjarins. Fóru þau nánar tiltekið yfir sundurliðun ársreiknings Garðabæjar og rekstrarreikning aðalbókar, þar sem farið var yfir rauntölur ársins 2023 samanborið við áætlun ársins 2023.