Beint í efni

Svar Vegagerðarinnar til Golfklúbbsins Odds varðandi ástand Elliðavatnsvegar (Flóttamannavegur), dags. 17. apríl 2024.

Málsnúmer 2403495

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (2116). fundur

Í svari Vegagerðarinnar kemur fram að Vegagerðin hafi falið verkfræðistofunni Eflu að skoða möguleikann á að koma fyrir undirgöngum sem eru einföld í framkvæmd, við Elliðavatnsveg, fyrir fótgangandi vegfarendur.

Bæjarráð Garðabæjar

02

13. (2114). fundur

Í erindi Golfklúbbsins Odds er Vegagerðin hvött til að tryggja öryggi í kringum golfvelli í umsjón golfklúbbsins. Bæjarráð tekur undir erindi golfklúbbsins og áréttar sjónarmið bæjarins sem fram komu í umsögn hans vegna samgönguáætlunar fyrir árin 2024-2038, þar sem lögð er áhersla á að öryggi við Flóttamannaveginn verði tryggð.

Fylgiskjöl