Birkiás 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Lögð fram tillaga að staðsetningu 10 m² smáhýsis við lóðarmörk að Ásabraut ásamt athugasemd sem borist hefur.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi á vettvangi með lóðarhafa.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
13. fundur
Lögð fram umsókn um staðsetningu smáhýsis á lóð að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd barst frá eigendum aðliggjandi lóðar. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
10. fundur
Lögð fram umsókn og meðfylgjandi skissa þar sem sótt er um staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk raðhúslóðarinnar Birkiás 1 að Ásabraut. Smáhýsi yrði staðsett u.þ.b. 40 cm frá lóðarmörkum. Húsið er 2,64m x 3,8m að stærð, samtals 10 fm. Hæð er 2,33m.
Engin ákvæði erum um smáhýsi í deiliskipulagi Hraunsholts vestra.
Garðabær er eigandi aðliggjandi lands og því þarf samþykki sveitarfélagsins fyrir smáhýsi sem er nær lóðarmörkum en 3m.
Áður en skipulagsstjóri afgreiðir málið fyrir hönd Garðabæjar skal grenndarkynna hugmyndina eigendum parhússins Bjarkaráss 2 og 4 auk þess sem samþykki eigenda raðhúslengjunnar Birkiás 1-5 þarf að liggja fyrir.