22 (22-26). fundur
22 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
13.11.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2301586
01
Gróðureldar - Greining á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar
Greining á hááhættu- og hættusvæðum vegna gróðurelda í upplandi Garðabæjar rædd. Umhverfisnefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að hagaðilar vinni saman við að meta áhættu á gróðureldum og setja fram aðgerðaráætlun um forvarnir og viðbragð.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2403209
02
mengunarmælingar 2024
Lagt fram.
Málsnúmer 2410449
03
Ályktun um vörsluskuldu búfjár
Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi vörsluskyldu búfjár lagt fram.
Málsnúmer 2411135
04
Útikennsla við Vífilsstaðavatn 2024
Umhverfisnefnd Garðabæjar hefur síðan árið 1999 boðið grunnskólum bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns. Kennslan við vatnið er liður í náttúrufræðikennslu skólanna. Bjarni Jónsson, fiskifræðingur hefur séð um útikennsluna öll árin, honum til aðstoðar er starfsfólk garðyrkjudeildar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2304320
05
Hlið - Deiliskipulagsbreyting - Veitingahús
DRÖG að bókun:
Hlið á Álftanesi var friðlýst sem fólkvangur árið 2002 en árið 2020 var fólkvangurinn stækkaður og friðýsingaskilmálar endurskoðaðir.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að skilmálar friðlýsingar fólkvangs séu virtir og tekur undir ábendingar Umhverfisstofnunar á að allar framkvæmdir þ.m.t mannvirkjagerð og aðrar breytingar á landi innan fólkvangsins séu háðar leyfi Umhverfisstofnunar, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Nefndin tekur einnig undir sjónarmið Umhverfisstofnunar sem telur að frekari uppbygging á skipulagssvæðinu kunni að hafa neikvæð áhrif á hlutverk og markmið fólkvangsins.
Hlið á Álftanesi var friðlýst sem fólkvangur árið 2002 en árið 2020 var fólkvangurinn stækkaður og friðýsingarskilmálar endurskoðaðir.