Beint í efni

Gróðureldar - Greining á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar

Málsnúmer 2301586

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

16. fundur

Hrönn Hafliðadóttir kynnti fyrir nefndinni námsverkefni sem Ásdís Björk Friðgeirsdóttir nemandi í skógfræði hefur unnið við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Verkefnið var unnið í samstarfi við sveitarfélagið Garðabæ þar sem Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ, var tengiliður við Landbúnaðarháskóla Íslands en hún kynnti verkefnið og kom að upplýsingaöflun. Verkefnið snýr að því að nota landslagsgreiningu til að skilgreina hættumat vegna gróðurelda á grónu landi í upplandi Garðabæjar. Hluti af því svæði tilheyrir Heiðmörk en einnig er Sandahlíð hluti af svæðinu. Gróðureldar flokkast sem náttúruvá en ljóst er að ein mikilvægasta forvörnin til að draga úr
og jafnvel fyrirbyggja náttúruhamfarir vegna náttúruvár er gott skipulag. Það byggir m.a. á hættu- og áhættumati. Með slíku verklagi má draga verulega úr tjónnæmi samfélagsins og
auka seiglu þess. Hættu- og áhættumat stuðlar einnig að bættu eftirliti vegna náttúruvár.

Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju með afrakstur verkefnisins og þá samvinnu Garðabæjar við Landbúnaðarháskólann. Vísað til umhverfissviðs að meta hvort niðurstaða verkefnisins kalli á endurskoðun skipulagsáætlana í upplandi Garðabæjar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

22 (22-26). fundur

Greining á hááhættu- og hættusvæðum vegna gróðurelda í upplandi Garðabæjar rædd. Umhverfisnefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að hagaðilar vinni saman við að meta áhættu á gróðureldum og setja fram aðgerðaráætlun um forvarnir og viðbragð.

Fylgiskjöl