Landsmót hestamanna 2024
Málsnúmer 2406806
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
30. fundur
Landsmót hestamanna 2024 var haldið í samvinnu hestamannafélaganna Fáks og Spretts 1. til 7. júlí í sumar með stuðningi frá Garðabæ.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar óskar stjórn, starfsfólki og sjálfboðaliðum Spretts til hamingju með vel heppnað Landsmót 2024.
Bæjarráð Garðabæjar
02
24. (2125). fundur
Í bréfinu er þess farið á leit að Garðabær styrki mótshald Landsmóts hestamanna sem haldið verður 1.-7. júlí 2024. Mótið verður haldið á félagssvæði Fáks, en verkefnið er samvinnuverkefni milli hestamannafélaga sem eru í Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarstjóra til afgreiðslu.