Ránargrund 1 - breyting á dsk Ása og Grunda
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (921). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar lóðina við Ránargrund 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að parhúsalóðinni við Ránargrund 1verði skipt í tvær lóðir, Ránargrund 1a og Ránargrund 1b.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.“ (Mál nr. 2205260)
Bæjarráð Garðabæjar
02
14. (2067). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar lóðina við Ránargrund 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að parhúsalóðinni við Ránargrund 1verði skipt í tvær lóðir, Ránargrund 1a og Ránargrund 1b.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að einbýlishúsalóðin Ránargrund 1 verði skipt upp í tvær parhúslóðir.
Lóðin er samkvæmt mæliblaði 1762 m2 en skiptist í eina ca 700 m2 lóð og eina ca 1000 m2 lóð. Stærðir lóðanna ákvarðast endanlega með útgáfu mæliblaðs.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr. 43.gr. og 44.gr. skipulagslaga. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.