Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna endurskoðunar á deiliskipulagi Setbergshverfis í Hafnarfirði.

Málsnúmer 2303196

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (2067). fundur

Bæjarráð tekur undir athugasemdir og ábendingar skipulagsnefndar um að fram eigi að koma í lýsingunni að hafa skuli samráð við eigendur aðliggjandi landssvæðis og viðkomandi sveitarfélags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Lögð fram "Markmið heildarendurskoðunar" (verkefnislýsing) Hafnarfjarðarbæjar á fyrirhugaðri endurskoðun deiliskipulags í Setbergi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar bendir á að samkvæmt grein 5.2.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir að ef tillaga að deiliskipulagi tekur til svæðis sem liggur að landamörkum eða sveitarfélagsmörkum skal haft samráð við eigenda þess lands eða viðkomandi sveitarfélags.
Full ástæða er til þess að það komi fram í verkefnislýsingu.
Í tilfelli Setbergs er aðliggjandi sveitarfélag Garðabær og landeigendur innan Garðabæjar eru tveir, einn að austanverðu og annar að sunnanverðu.
Æskilegt væri að á forsíðu verkefnislýsingar væri vísað til þess að um verkefnislýsingu sé að ræða og samkvæmt hvaða lagagreinum hún sé unnin.
Að öðru leyti gerir Garðabær ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.