Beint í efni

Kinnargata 33 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2303054

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

6. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að breyta notkun bílgeymslu þannig að hluti bílgeymslu verði geymsla með beinu aðgengi frá íbúð en fremsti hluti bílgeymslu verði tækjarými. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem svar er að ekki er heimilt að breyta bílgeymslu með þeim hætti að ekki sé hægt að koma fyrir bifreið.
Byggð í Urriðaholti er þétt og fjöldi bílastæða er takmarkaður. Skipulagsstjóri gerir því athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt fyrir uppskiptingu bílageymslu sem minnkar pláss fyrir bifreiðar á lóðinni. Fordæmisgildi veitingar byggingarleyfisins gæti haft mikil áhrif á deiliskipulag í Urriðaholti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir parhússins að Kinnargötu 33 sem gerir ráð fyrir að bílageymslu sé breytt í tækjarými og geymslu.
Uppdráttum vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.