Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi

Málsnúmer 2410252

Ferill máls

Ungmennaráð Garðabæjar

01

2. fundur

a) Mætir ferskari í skólann seinna.
b) Svefnklukka unglinga ekki fullkomin.
c) Æfingar seint á kvöldin.
d) Tilnefnum Freyju og Maríu í starfshóp vegna seinkunnar á upphafi skóladags.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

26. fundur

Lögð fram til kynningar tillaga að spurningum sem lagðar vera fyrir forráðafólk, nemendur og starfsfólk í 8.-10. bekk í grunnskólum Garðabæjar. Erindinu var vísað til fræðslusviðs til frekari útfærslu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

33. fundur

Til umræðu tillaga Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi.

Íþrótta- og tómstundaráð fagnar umræðu um svefnvenjur ungmenna í Garðabæ, en beinir því til hlutaðeigandi aðila að við mat á kostum og göllum tillögunnar og við ákvörðun hennar verði lagt sérstakt mat á áhrif hennar á íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Við matið er nauðsynlegt að horft verði til áhrifa þeirra breytinga sem lagðar eru til á stundatöflu og starfsemi frjálsu félaganna í bænum m.t.t. til útivistarreglna bæjarins og lýðheilsu ungmennanna.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

24. fundur

Kynnt var vinna skólanefndar vegna skoðunar á seinkunar á upphafi skóladags árið 2019 og könnun sem þá var lögð fyrir nemendur og foreldra. Skólanefnd leggur til að lögð verði fyrir ný könnun um málið meðal nemenda, foreldra og skólafólks. Erindinu vísað til fræðslu- og menningarsviðs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

15. (948). fundur

Harpa Þorsteinsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram tillögu að stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi.

Greinargerð:
"Góður svefn er öllum nauðsynlegur til að geta tekist á við viðfangsefni dagsins. Svefn hefur meðal annars jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, á námsgetu og einbeitingu, hjálpar heilanum að festa upplýsingar í minni og er nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska barna.

Umræða um seinkun skólabyrjunar í Garðabæ er ekki ný af nálinni. Það er áskorun fyrir skólana að taka þetta skref og sérstaklega ef að sveitarfélagið styður ekki vel við bakið á þeim því breytingin á sér ekki eingöngu stað innan skólanna. Það þarf að rýna vel hvernig skipulag sveitarfélagsins styður við og ég hef fulla trú á því að tækifærin séu til staðar í okkar góða samfélagi.

Við viljum fjárfesta í heilsunni með aðgerðum sem stuðla að bættum svefni. Við þurfum að þora að taka skrefið og seinka skólabyrjun á unglingastigi ásamt því að auka vægi fræðslu um mikilvægi svefns. Þannig getum við stutt við heilbrigða framtíð, með mótvægisaðgerð eins og að seinka skólabyrjun lengjum við svefn ungmenna og erum með því að sporna við þeim áhættuþáttum sem við erum að takast á við í auknum mæli í samfélaginu, t.d. streitu og kvíða.

Lagt er til að skipaður verði starfshópur með fulltrúum skóla, íþrótta og tómstunda í Garðabæ, sem verði falið að leggja grunn að breiðu samráði um mögulegar leiðir til að seinka upphafi skóladags í á unglingastigi í Garðabæ. Mikilvægt er að kalla eftir samráði við nemendur, kennara, starfsfólk, skólastjóra, fulltrúa íþrótta- og tómstundastarfs ásamt því að tekið verði tillit til reynslu annarra sveitarfélaga sem nú þegar stefnt í þessa átt. Einnig er lagt til að starfshópurinn muni greina frá vinnu sinni til upplýsinga og umræðu til skólanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar og þá sé stefnt að því skýrsla liggi fyrir 20. febrúar 2025."

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla og íþrótta- og tómstundaráði.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi framkomna tillögu og lagði til að málið yrði jafnframt rætt í ungmennaráði.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkomunni tillögu til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla. íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði.