Beint í efni

15. (948). fundur

17.10.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

15. (948). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

17.10.2024

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. október 2024 lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2410006F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 8/10 '24.

Björg Fenger ræddi 2.tl., Vífilsstaði - framtíð svæðis og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Vífilsstaðir eru perla í bæjarlandinu með sterka sögulega skírskotun. Svæðið býður upp á margþætta möguleika enda er staðsetningin einstök. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvetja ráðherra og ríkisvaldið til skjótra svara og góðrar samvinnu um mótun skipulags og framtíðarsýnar um svæðið."

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 2.tl., Vífilsstaði - framtíð svæðis.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl., Vífilsstaði - framtíð svæðis. Jafnframt þakkaði hún bæjarstjóra fyrir vel heppnaða íbúafundi.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 2.tl., Vífilsstaði - framtíð svæðis og tók undir þakklæti fyrir vel heppnaða íbúafundi.

Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2410015F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 15/10 ' 24.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2.tl., barnavernd í Garðabæ - kynningu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 6.tl., þróun og uppbyggingu Garðatorgs.

Björg Fenger ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt-háholt

aðalskipulagsbreytingu og 4.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl., barnavernd í Garðabæ - kynningu.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 2.tl., barnavernd í Garðabæ - kynningu og 6.tl., þróun og uppbyggingu Garðatorgs.

Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2410010F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar frá 9/10 '24.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl., íþróttaþing Garðabæjar, 2.tl., forvarnarviku Garðabæjar 2024, 3.tl., sumarnámskeið 2024 og 4.tl., samninga við félög til undirritunar 2024.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409045F

04

Fundargerð samráðshópar um málefni fatlaðs fólks frá 3/10 '24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2410004F

05

Fundargerð skipulagsnefndar Garðabæjar frá 11/10 ' 24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409036F

06

Fundargerð skólanefndar Garðabæjar frá 30/9 '24.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl., þróunarsjóð grunnskóla 2024, síðari úthlutun.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409043F

07

Fundargerð skólanefndar Garðabæjar frá 2/10 '24.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 2.tl., starfsáætlanir grunnskóla 2024-2025, 3.tl., menntadaginn 2024, 4.tl., börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn og 5.tl., kynningu og samtal við stjórnendur Álftanesskóla.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2410013F

08

Fundargerð öldungaráðs frá 14/10 '24.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 1.tl., fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar, 2.tl., samskiptasáttmála Garðabæjar 2023, 3.tl., kynningu á haustdagskrá Félags eldri borgara og 5.tl., hönnun og útboð Lambamýrar, fjölnota aðstöðu fyrir eldri borgara.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401136

09

Fundargerð stjórnar SSH (Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) frá 7/10 '24.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl., samgöngusáttmálann, verkefni, 2.tl., fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, 3.tl., skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins og 9.tl., skilavegi - yfirfærslu til sveitarfélaga.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401133

10

Fundargerðir stjórnar SORPU frá 4/9 og 18/9 ' 24.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2401134

11

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/9 '24.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl., fjárhagsáætlun - staðan, 2.tl. Klappið - cEMV og markaðsmál., 3.tl. evrópuverkefni og inngildingu, 4.tl,. fargjaldaálag - reglur og ferla, 5.tl., innra eftirlit og 6.tl., kjaramál.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2410252

12

Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi

Harpa Þorsteinsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram tillögu að stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi.

Greinargerð:

"Góður svefn er öllum nauðsynlegur til að geta tekist á við viðfangsefni dagsins. Svefn hefur meðal annars jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, á námsgetu og einbeitingu, hjálpar heilanum að festa upplýsingar í minni og er nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska barna.

Umræða um seinkun skólabyrjunar í Garðabæ er ekki ný af nálinni. Það er áskorun fyrir skólana að taka þetta skref og sérstaklega ef að sveitarfélagið styður ekki vel við bakið á þeim því breytingin á sér ekki eingöngu stað innan skólanna. Það þarf að rýna vel hvernig skipulag sveitarfélagsins styður við og ég hef fulla trú á því að tækifærin séu til staðar í okkar góða samfélagi.

Við viljum fjárfesta í heilsunni með aðgerðum sem stuðla að bættum svefni. Við þurfum að þora að taka skrefið og seinka skólabyrjun á unglingastigi ásamt því að auka vægi fræðslu um mikilvægi svefns. Þannig getum við stutt við heilbrigða framtíð, með mótvægisaðgerð eins og að seinka skólabyrjun lengjum við svefn ungmenna og erum með því að sporna við þeim áhættuþáttum sem við erum að takast á við í auknum mæli í samfélaginu, t.d. streitu og kvíða.

Lagt er til að skipaður verði starfshópur með fulltrúum skóla, íþrótta og tómstunda í Garðabæ, sem verði falið að leggja grunn að breiðu samráði um mögulegar leiðir til að seinka upphafi skóladags í á unglingastigi í Garðabæ. Mikilvægt er að kalla eftir samráði við nemendur, kennara, starfsfólk, skólastjóra, fulltrúa íþrótta- og tómstundastarfs ásamt því að tekið verði tillit til reynslu annarra sveitarfélaga sem nú þegar stefnt í þessa átt. Einnig er lagt til að starfshópurinn muni greina frá vinnu sinni til upplýsinga og umræðu til skólanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar og þá sé stefnt að því skýrsla liggi fyrir 20. febrúar 2025."

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla og íþrótta- og tómstundaráði.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi framkomna tillögu og lagði til að málið yrði jafnframt rætt í ungmennaráði.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkomunni tillögu til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla. íþrótta- og tómstundaráði og ungmennaráði.