Beint í efni

Þróunarsjóður grunnskóla 2025

Málsnúmer 2411020

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

29. fundur

Lagt var fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2025. Að þessu sinni bárust 16 umsóknir. Skólanefnd lagði til við bæjarráð að úthlutað yrði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

28. fundur

Úthlutað var úr Þróunarsjóði grunnskóla 2025. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust 16 umsóknir, sótt var um var um kr. 31.178.075.- Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu. Skólastjórnendur ásamt nokkrum umsækjendum komu sem gestir á fundinn og kynntu sínar umsóknir. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni um metnaðarfullt og framsækið skólastarf í Garðabæ.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

26. fundur

Helstu áherslur Þróunarsjóðs grunnskóla Garðabæjar ræddar. Til úthlutunar árið 2025 eru 28 milljónir.

Áherslur Þróunarsjóðs grunnskóla 2025 verða:
Fjölbreyttir kennsluhættir og samþætting námsgreina.
Félags, samskipta og vináttuþjálfun með áherslu á samkennd.
Efling verklegra þátta í náttúrufræði á öllum skólastigum.
Námsefnisgerð, nýsköpun og tækni.
Samstarf heimilis og skóla.
Skólasókn; leiðir til að efla áhuga og mætingu nemenda og vinna gegn slakri skólasókn og/eða
skólaforðun.

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla. Við afgreiðslu er m.a. horft til tengingar við fræðasamfélagið og samstarfs milli skóla og skólastiga.

Umsóknir skulu berast fyrir 1. mars og verður þeim svarað fyrir 31. mars.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

25. fundur

Umræður voru um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2025. Formanni skólanefndar og fræðslu- og menningarsviði er falið að útfæra áherslur og auglýsa.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

24. fundur

Rætt var um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2025.