29. fundur
29. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
26.03.2025
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði, kynnti aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
02
Grunnskólar, árangur og líðan
Gísli Guðjónsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar. Til kynningar voru drög að framsetningu á gögnum er varða íslensku- og í stærðfræði í 4.b. 7. b. og 10.b. Sviðsstjóra fræðslusviðs, grunnskólafulltrúa og sviðsstjóra þjónustu og þróunarsviðs ásamt formanni skólanefndar er falið að vinna áfram að niðurstöðum og gera tillögur að næstu skrefum inn á fund skólanefndar grunnskóla. Skólanefnd þakkar mikilvæga vinnu og ekki síst aðkomu grunnskólanna að gagnavinnslu.
03
Þróunarsjóður grunnskóla 2025
Lagt var fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2025. Að þessu sinni bárust 16 umsóknir. Skólanefnd lagði til við bæjarráð að úthlutað yrði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins.
04
Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum
Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti verklag og helstu ákvæði í útboðsgögnum vegna skólamáltíða í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
05
Íslenska Æskulýðsrannsóknin
Sagt var frá framkvæmd Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og fyrirhugaðri kynningu á niðurstöðum 2025.
07
Aukin skólaþjónusta í grunnskólum
Sviðsstjóri fræðslusviðs og frístundasviðs kynnti aukna skólaþjónustu í Garðabæ sem felst í stuðningsviðtölum sálfræðinga fyrir elstu árgangana og námskeiði fyrir forráðafólk barna með vægan kvíða.