35. fundur
35. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
19.11.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Tinna Borg Arnfinnsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Nicoleta Mihai - fulltrúi starfsmanna
- Ingi Örn Jónsson - fulltrúi foreldra
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
01
Skólaþjónusta Garðabæjar greiningar og tölfræði 2024-2025 leikskólar
Kristín Theodóra Þórarinsdóttir talmeinafræðingur og Margret Björk Björgvinsdóttir sérkennslufulltrúi kynntu hlutverk, verkefni og tölulegar upplýsingar frá sérfræðiþjónustu skólaþjónustu Garðabæjar.
02
Gervigreindarstefna Garðabæjar
Bjarndís Fjóla Jónsdóttir verkefnastjóri í kennslu- og upplýsingatækni kynnti gervigreindarstefnu Garðabæjar. Einnig sagði hún frá áhugaverðu tilraunaverkefni í leikskólanum Hæðarbóli þar sem elstu börnin eru markvisst að læra upplýsingatækni.
03
Dagskrá fyrir skólahópa 2025 2026
Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar kynnti menningardagskrá fyrir leikskólahópa. Auk hefðbundinna verkefna kynnti Ólöf spennandi nýjungar sem eru á dagskrá í upphafi nýs árs, Söngvavor og móttöku á Hönnunarsafni Íslands.
04
Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Lundaból
Leikskólanefnd samþykkti færslu á skipulagsdegi fyrir leikskólann Lundaból.
05
Viðurkenningar í skólastarfi
Margrét Bjarnadóttir formaður leikskólanefndar fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar og kynnti þau verkefni sem fengu viðurkenningu.