27. fundur
27. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
11.02.2025
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Nefndarmenn samþykktu tillögu formanns, að færa tölulið 6 sem tölulið 2. Aðrir dagskrárliðir voru samkvæmt dagskrá fundarins.
Dagskrá
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024
Deildarstjóri þjónustu og starfrænnar þróunar, kynnti helstu niðurstöður íbúakönnunar Gallup 2024. Meðal stærstu sveitarfélaga landsins mælist ánægja forráðamanna með grunnskóla sveitarfélagsins hæst í Garðabæ. Skólanefnd þakkar starfsmönnum og stjórnendum grunnskóla bæjarins svo og fræðslu- og menningarsviði fyrir metnað og fagmennsku í sínum störfum sem greinilega skilar sér í ánægju foreldra/forráðamanna með grunnskóla bæjarins.
02
Verkfall KÍ
Gerð var grein fyrir stöðunni vegna verkfalls KÍ í Garðaskóla sem stóð frá 1. - 9. febrúar. Verkfalli í Garðaskóla hafði áður verið boðað frá 25.11 - 20.12. en var frestað þann 30.11.24 til 1.febrúar 2025. Verkfallsaðgerðum var beint að tilteknum skólum/sveitarfélögum sem dæmt var ólöglegt 9. febrúar 2025. Skólastarf hófst að nýju 10. febrúar. Skólanefnd harmar ástandið og vonar að deiluaðilar komist að samkomulagi sem fyrst.
03
Innritun nemenda í grunnskóla 2025-2026
Grunnskólafulltrúi kynnti innritun nemenda í 1.bekk (f.2109) og 8.bekk (f.2012) vegna skólaársins 2025-2026. Innritun fer fram dagana 1. -10. mars nk. Á sama tíma fara fram kynningar í grunnskólum bæjarins. Fjöldi nemenda sem eiga lögheimili í Garðabæ og eru fæddir 2019 eru 264 og nemendur fæddir 2012 eru 247. Vorið 2025 munu 313 nemendur útskrifast úr 10. bekk frá grunnskólum Garðabæjar.
04
Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum
Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti útboð skólamáltíða í leik- og grunnskóla sem fram fer á vormánuðum 2025.
05
Útboð ritföng 2025 grunnskólar
Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti útboð ritfangakaupa grunnskóla sem fram fer á vormánuðum 2025.
06
Kynning og samtal við skólastjórnendur Hofsstaðaskóla
Skólanefnd þakkar skólastjóra Hofsstaðaskóla fyrir áhugaverða kynningu. Skólastjóri kynnti m.a., lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu, nemendastýrð foreldrasamtöl, leiðsagnarnám, aukinn áhuga nemenda á skákiðkun og verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar.