Beint í efni

Útboð á ritföngum fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar.

Málsnúmer 2412379

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2171). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Ritföng fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar 2025-2027":

1. A4 ehf., kr. 7.888.539.
2. Penninn ehf., kr. 8.398.825.

Kostnaðaráætlun var 10.000.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda A4 ehf., að fjárhæð kr. 7.883.539. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu- og frísundasviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

27. fundur

Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti útboð ritfangakaupa grunnskóla sem fram fer á vormánuðum 2025.