6. (2154). fundur
6. (2154). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.02.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2502142
01
Neyðarstjórn Garðabæjar - starfshættir
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og starfrænnar þróunar, gerði grein fyrir starfsháttum Neyðarstjórnar Garðabæjar og viðbragðsáætlun bæjarins. Sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs fór yfir helstu atriði tengd upplýsingaöryggi Garðabæjar.
Málsnúmer 2502152
02
Breyting á skipuriti Garðabæjar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á innra skipulagi bæjarins.
Menningarsvið færist yfir á Þjónustu- og þróunarsvið. Með því móti skapast skarpari tenging menningar við samskipta- og kynningardeild bæjarins. Jafnframt verði létt á umfangi Fræðslu- og menningarsviðs sem er umfangsmesta svið bæjarins.
Bæjarráð staðfestir breytingarnar á innra skipulagi bæjarins fyrir sitt leyti.
Málsnúmer 2502102
03
Útboðslýsing aðstöðu fyrir heilsueflandi starfsemi í Miðgarði.
Lagðir fram útboðs- og samningsskilmálar Miðgarðs vegna aðstöðu fyrir heilsueflandi starfsemi - útleigu rýmis á 2. hæð.
Í hliðarrýmum sunnan megin í Miðgarði eru tvær óráðstafaðar hæðir sem eru um 1.500 fm. hvor um sig. Þar er fyrirhugað að starfrækt verði heilsutengd starfsemi.
Fyrirliggjandi drög að útboðslýsingu er samkvæmt tillögum sem mótaðar voru af íþrótta- og tómstundaráði í kjölfar ábendinga sem kallað var eftir í samráðsgátt bæjarins 2022.
Bæjarráð vísar framkvæmd útboðsins til umhverfissviðs, sem nýtur liðsinnis VSÓ ráðgjafar við útboðsferlið. Bæjarráð mun tilnefna valnefnd útboðsins.
Málsnúmer 2502137
04
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi þingmálaskrá 156. löggjafarþings 2025.
Yfirlit þingmála 156. löggjafarþings lögð fram.
Málsnúmer 2502138
05
Tilkynning frá fjármálaráðuneytinu varðandi umfang hins opinbera.
Lögð fram.
Málsnúmer 2502126
06
Bréf Þjóðskjalasafns Íslands varðandi eftirlitskönnun með skjalavörslu og skjalastjórn. dags. 6. febrúar 2025.
Könnun Þjóðskjalasafnsins varðandi skjalahald sveitarstjórnarskrifstofa sem eru afhendingarskyldar til safnsins. Markmið könnunarinnar er að meta hvernig afhendingarskyldir aðilar uppfylla lög og reglur um skjalastjórn til að efla ráðgjöf, þjónustu og eftirlit Þjóðskjalasafnsins.
Bæjarráð vísar könnuninni til úrvinnslu hjá þjónustu- og þróunarsviði.
Málsnúmer 2502144
07
Beiðni Hestamannafélagsins Sóta um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2025, dags. 7. febrúar 2025.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Sóta styrk að fjárhæð kr. 1.008.199 til greiðslu fasteignagjalda árið 2025.
Málsnúmer 2412004
08
Verkfall KÍ - staða kjaraviðræðna.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu kjaraviðræðna KÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga og þá stöðu sem komin er upp í kjaradeilunni í kjölfar dóms Félagsdóms í máli nr. 1/2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga gegn Kennarasambandi Íslands, sem kveðinn var upp 9. febrúar 2025.
Brynja Dan Gunnarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Framsókn í Garðabæ lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu kjaradeilna ríkis og sveitarfélaga við kennara sem nú virðast í algjörum hnút.
Framsókn styður kennara í sinni kjarabaráttu og telur mikilvægt að gengið sé að samningaborðinu til að tryggja faglega mönnun menntakerfisins nú og um ókomna tíð. Börnin okkar eru framtíðin og er framtíðin á völtum fótum stödd sé ekki hlúð betur að þeirri framlínusveit sem helgar sig störfum með börnunum okkar og teljum við í Framsókn mikilvægt að vera róttæk í lausnaleit þessarar deilu."